1. gr. Sjálfseignarstofnunin heitir Acuparia og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.
2. gr. Heimilisfang stofnunarinnar er í Garðabæ.
3. gr. Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að umhverfisvernd og skógrækt og skal ráðstafa fjármunum sjálfseignarstofnunarinnar í þágu markmiða hennar. Markmiðum sínum hyggst stofnunin ná með því að:
Útvega sér fjármagn og land.
Bæta jarðveginn með sáningu lúpínu eða annars gróðurs til þess að koma í veg fyrir jarðvegsrof.
Gróðursetningu/sáningu trjágróðurs.
Endurheimta votlendi, binda kolefni og auka fjölbreytni lífríkis, þar á meðal fuglalífs.
Stuðla að fræðslu um umhverfísvernd og skógrækt.
4. gr. Stofnandi stofnunarinnar er Albrecht Ehmann, kt. 080751-8349.
5. gr. Stofnfé stofnunarinnar er kr. 1.200.000.- kr., sem lagt er fram af stofnanda, sbr. 4. gr. Stofnfé er óskerðanlegt. Stofnuninni er heimilt að taka við gjöfum og fjárframlögum.
Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim verðmætum er hún kann að eignast síðar. Stofnandinn hefur engin sérréttindi í stofnuninni.
6. gr. Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum til 5 ára í senn. Jafnframt skulu við kjör á aðalmönnum í stjórn kosnir tveir menn í varastjórn til sama tíma. Stofnandi tilnefnir fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn.
Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina. Stjórn stofnunarinnar getur veitt umboð fyrir stofnunina.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvægar ákvarðanir má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.
7. gr. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist þess að stjórnarfundur sé haldinn. Stjórninni er heimilt að setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa hennar.
8. gr. Stjórn stofnunarinnar er heimilt að ráða einn eða fleiri framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri á rétt til setu á stjórnarfundum þótt hann sé ekki stjórnarmaður, en hann fer þó ekki með atkvæðisrétt. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.
9. gr. Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri löggilta endurskoðendur/skoðunarmenn til að endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna stofnunarinnar.
10. gr. Reikningsárið er almanaksárið og er fyrsta reikningstímabil frá stofnun sjálfseignarstofnunarinnar og til næstu áramóta.
11. gr. Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina stofnunina annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hana niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Komi til niðurlagningar stofnunarinnar skal hreinni eign hennar varið til markmiðanna sem greint er frá í 3. gr. hér að ofan eða skyldra markmiða.
12.gr. Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Norðurlandi vestra á skipulagsskrá þessari.
Samþykkt á stofnfundi í Garðabæ þann 7. nóvember 2016.