Sjálfseignarstofnunin heitir Acuparia og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur. Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að umhverfisvernd og skógrækt. Nánar er fjallað um stofnunina undir flipanum "Acuparia".
Skógrækt
"Við landnám voru um 60% Íslands gróið land og þar af var skóglendi 25-30%. Nú eru 75% af Íslandi gróðurvana. Skógur þekur aðeins 1% af landinu sem við byggjum. Frá landnámi hafa tapast 3,8 milljónir hektara gróins lands, að meðaltali 3.400 hektarar á ári eða 9 hektarar á degi hverjum. Þetta verður að stöðva. Við getum sameiginlega snúið vörn í sókn Meira.
Fuglar og votlendi
Votlendi er landsvæði sem er annaðhvort alltaf eða árstíðabundið svo mettað af vatni að það verður að sérstöku vistkerfi. Meira.