ACUPARIA er sjálfseignarstofnun með staðfestri skipulagsskrá og starfar skv. lögum 19/1988.Hún var stofnuð árið 2016 í Garðabæ og stundar ekki atvinnurekstur.Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að umhverfisvernd og skógrækt og skal ráðstafa fjármunum sjálfseignarstofnunarinnar í þágu markmiða hennar. Markmiðum sínum hyggst stofnunin ná með því að:
Útvega sér fjármagn og land.
Bæta jarðveginn með sáningu lúpínu eða annars gróðurs til þess að koma í veg fyrir jarðvegsrof.
Gróðursetningu/sáningu trjágróðurs.
Endurheimta votlendi, binda kolefni og auka fjölbreytni lífríkis, þar á meðal fuglalífs.
Stuðla að fræðslu um umhverfísvernd og skógrækt.
Öll vinna í Acuparia er sjálfboðavinnu. Stjórn hennar samanstendur nú af stofnanda Albrecht Ehmann auk Árni Ehmann og Martin Emmanúel Ehmann. Stofnunin er fjármögnuð með vaxtatekjum og framlögum. Einnig er fyrirhugað að nota leigutekjur til að fjármagna verkefnin. Ef þú eða þitt fyrirtæki vill styrkja Acuparia þá eru hér fyrir neðan 2 hnappar sem opnar nýja síðu þar sem upplýsingar um styrkveitingar koma fram.